Myndablog Krúsa

Færslur: 2012 Febrúar

29.02.2012 23:34

1275 Jón Vídalín VE 82


1275 Jón Vídalín VE 82 lá í Reykjavíkurhöfn í morgun.© mynd MKV 29 feb 2012

29.02.2012 22:55

Systurskip á loðnuveiðum


Erika GR -18-119 og 1903 Þorsteinn ÞH 360 á loðnuveiðum en þau eru bæði smíðuð hjá Ulstein Hatlö A/S í Ulsteinsvik í Noregi Erika sem Hákon ÞH 250 árið 1987 en Þorsteinn sem Helga II RE 373 árið 1988 en ekki voru málin alveg þau sömu í upphafi því Hákon var 57,45 metrar á lengd en Helga II 51,62 metrar á lengd en er í dag 70,10 eftir lengingu árið 2000 en Erika er óbreytt fyrir utan að byggt var yfir ganginn stjórnborðsmeginn árið 2010.© mynd MKV 26 feb 2012
1807 Hákon ÞH 250 á sinni fyrstu loðnuvertíð árið 1988.© mynd Jónas Árnason 28 jan 1988
1903 Helga II RE 373 í löndun á Seyðisfirði á sinni fyrstu loðnuvertíð árið 1989.© mynd Jónas Árnason 1989

29.02.2012 22:31

Jupiter FD 42


Jupiter FD 42 við Skarfabakka í morgun og nótin hjá Hampiðjunni.© mynd MKV 29 feb 2012
Já einu sinni hét hann Magnarson H-90-AV.© mynd MKV 29 feb 2012
Það toppar ekkert þessa brjóstgóðu stafnmynd sem er á
honum Jupiter.© mynd MKV 29 feb 2012
Það er eitthvað af loðnu í honum.© mynd MKV 29 feb 2012
Og svo er ein af honum rétt rúmlega ársgömul en hérna er hann að skríða fyrir Garðskagann.© mynd MKV 26 feb 2011

29.02.2012 19:22

Erika og Eendracht


Þeir eru seigir á Eriku fóru út í gærkvöldi komnir aftur inn klukkan 10 að morgni en þá var kominn annar gestur í Helguvík Eendracht sem kom með þýska flugherinn sem hér skal halda uppi vörnum næstu vikur.© mynd MKV 29 feb 2012

29.02.2012 10:19

Ásgrímur og Jón


2780 Ásgrímur Halldórsson SF 250 og 1525 Jón Kjartansson SU 111 á loðnuveiðum undan Grindavík.© mynd MKV 26 feb 2012

29.02.2012 01:35

Viðhaldsdagur hjá Eriku


© mynd MKV 28 feb 2012

© mynd MKV 28 feb 2012

© mynd MKV 28 feb 2012

© mynd MKV 28 feb 2012

Það var eitthvað hafarí hjá þeim á Eriku nótin kominn upp á bryggju og menn að byrja að bardúsa við hana og svo var verið að eiga við kraftblökkina.© mynd MKV 28 feb 2012

28.02.2012 23:38

Alpha og Erika í Helguvík


Fyrsta löndun hjá 1031 Ölphu HF 32 var í Helguvík í dag en ekki var farið austur á firði eins ég sagði frá í annari færslu en ekki var að sjá að mikill afli væri í henni.© mynd MKV 28 feb 2012
Erika kom í nótt og var búinn að landa.© mynd MKV 28 feb 2012
Hérna eru þær saman á mynd Alpha og Erika.© mynd MKV 28 feb 2012
Það er áberandi mikill breiddarmunur á þessum skipum en Alpha er 10 metrar á breidd en Erika 12,5.© mynd MKV 28 feb 2012
1031 Alpha HF 32 ex Carpe Diem HF,Álsey VE,Bergur VE,Valaberg GK,Hrafn Sveinbjarnarson III GK og Magnús NK.Hérna er meira um skipið 1031 1967-2011

28.02.2012 01:19

2780 Ásgrímur Halldórsson SF 250


Ásgrímur Halldórsson SF 250 að dæla utan við Grindavík á sunnudaginn.© mynd MKV 26 feb 2012

28.02.2012 01:02

2600 Guðmundur VE 29


Þeir á Guðmundi eru sennilega að snurpa þarna.© mynd MKV 26 feb 2012
Og hérna eru þeir byrjaðir að draga.© mynd MKV 26 feb 2012
© mynd MKV 26 feb 2012

Og það hefur verið gott í hjá þeim en hérna sigla þeir inn á Garðsjóinn í gegnum regnbogann á seinnipartinum sama dag í ólíkt betra sjólagi en við Grindavík.© mynd MKV 26 feb 2012

27.02.2012 23:26

Finnur Fríði FD 86


Sá glæsilegi Finnur Fríði FD 86 öslar út Garðsjóinn í morgun á leið á loðnumiðinn út af Hafnarbergi.© mynd MKV 27 feb 2012
Svo tók ég þessa af honum á föstudaginn var í Keflavík.© mynd MKV 24 feb 2012

27.02.2012 10:09

Alpha HF 32 í loðnuflutninga fyrir SVN

1031 Alpha HF 32 liggur þessa stundina út af Hafnarleirnum og bíður eftir því að eitthvert skipið á vegun SVN dæli í sig loðnu sem hún mun svo flytja austur á firði en burðargeta Ölphu er um 1200 tonn.
Þessa tók ég af henni í Akureyrarhöfn í fyrrasumar.© mynd MKV 7 júlí 2011
Hérna er svo skipið með fullfermi í Helguvík í mars árið 2003 sem Bergur VE 44 en þetta er að ég held eina löndun skipsins í Helguvík.© mynd Valur Kristinsson 2 mars 2003

27.02.2012 01:21

Erika GR 18-119


© mynd MKV 26 feb 2012

Erika GR 18-119 ex Hákon ÞH 250,Áskell EA 48 og Birtingur NK 119 að veiðum út af Hópsnesi í gær.© mynd MKV 26 feb 2012
Hér er hún svo við Garðskaga rétt fyrir klukkan 6 í gær á leið í Helguvík til löndunar.© mynd MKV 26 feb 2012
Og hérna siglir hún framhjá 2600 Guðmundi VE 29 á Garðsjónum sem sennilega er að frysta aflann.© mynd MKV 26 feb 2012

27.02.2012 01:04

1360 Kleifaberg RE 7


© mynd Kristján Kristjánsson 26 feb 2012

Og Kleifabergið beið ekki boðanna eftir að Manu var farinn og skellti sér upp að Eyjabakkanum til þess að fá sinn sopa en gamli Sulzer Zgoda rokkurinn hefur verið orðinn þyrstur og svo er greinilega ágætt að tæma veltitankinn í leiðinni.© mynd Kristján Kristjánsson 26 feb 2012

27.02.2012 00:53

Manu GR 7-43


© mynd Kristján Kristjánsson 26 feb 2012

Grænlenski togarinn Manu GR 7-43 að keyra frá Eyjagarðinum í Örfirisey eftir að hafa tekið olíu í gær en hann lagðist síðan við vogabakka.© mynd Kristján Kristjánsson 26 feb 2012
Manu er smíðaður hjá Söviknes Verft A/S í Sövik í Noregi árið 1987 með yard no.99 og eru helstu mál 930 tonn 56,00 metrar á lengd 14,00 metrar á breidd og 12,30 metrar á dýpt.Aðalvél er af gerðinni Deutz SBV6M640 3600 hp árgerð 1986.

26.02.2012 20:12

1525 Jón Kjartansson SU 111


© mynd MKV 26 feb 2012

© mynd MKV 26 feb 2012

© mynd MKV 26 feb 2012

1525 Jón Kjartansson SU 111 ex Eldborg HF 13 og Hólmaborg SU 11 við Grindavík í morgun en myndirnar eru teknar af Hópsnesi.© mynd MKV 26 feb 2012
Smíðaður í Uddevalla í Svíþjóð árið 1978 lengdur árið 1996 mál:1181 tonn 74,29 metrar á lengd 12,00 metrar á lengd og 7,85 metar á dýpt.Aðalvél Wartsila 7500 hp árgerð 1999.
Flettingar í dag: 314
Gestir í dag: 63
Flettingar í gær: 2268
Gestir í gær: 221
Samtals flettingar: 1198983
Samtals gestir: 237564
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 08:56:02
clockhere

Um mig

Nafn:

Markús Karl Valsson

Farsími:

8939509

Afmælisdagur:

17 ágúst 1962

Staðsetning:

Garður

Tenglar